Ætla að byrja að blogga á mínu eigin vefsvæði. Slóðin er http://www.gvendur.com/public/blog/.
sabato, aprile 26, 2008
giovedì, marzo 06, 2008
Nokkrar myndir af einum degi í lífi mínu
Skrifað af Gvendur klukkan 15:17 |
Flokkur: Fjölskylda, Fótbolti, Hamingja, Heimasíðan, Listir, Ljósmyndun, Menntun, Skemmtun, Tími, Tónleikar, Tónlist, Vinátta, Útlönd
Forza Viola
Ég er að fara á völlin í kvöld. Everton er hérna í heimsókn í Flórens til að spila í Evrópukeppninni. Borgin er því full af snoðklipptum Scouserum sem eru með ólæti. Ítölsk lög koma því til bjargar í dag og banna kaup og sölu með áfengi í borginni frá og með fimm í dag til miðnættis. Þetta er alltaf gert ef lið frá Bretlandseyjum kemur í heimsókn til Ítalíu.
mercoledì, febbraio 27, 2008
Viltur kall
Ég er búinn að vera mjög pirraður í skapinu undanfarið. Veit nú nokkurnvegin afhverju en skil ekki afhverju. Það er búið að taka mig nokkra daga að koma mér niður á jörðina aftur. Róa mig niður og ná áttum. Einhverra hluta vegna hef ég látið aðra en sjálfan mig stjórna minni líðan. Sem gengur ekki. Afhverju ætti ég að vera pirraður þegar ég sjálfur á að vera rólegur og yfirvegaður? Annars er ég að hitta sænska stelpu hérna og kemur okkur vel saman. Taugarnar hafa farið rússibanaferð fram og til baka. Aðalega vegna þess að svona mál eru einhvernvegin á allt öðru tempói á skerinu fyrir norðan. Hérna er allur pakkinn tekinn, gengið hægt um gleðinnar dyr. Sem mér er eiginlega bara farið að líka ótrúlega vel. Allora, ciao.
Skrifað af Gvendur klukkan 14:06 |
mercoledì, febbraio 20, 2008
Peningaplokk
Ég heyrði ansi skemmtilega samsæriskenningu hérna um daginn frá einum Svíanum. Hún hélt því fram að íslenska efnahagskerfið væri sterkt vegna þess að á Íslandi eigum við víst að búa til eða fjölfalda peningaseðla meira en eðlilegt er. Hún spurði síðan hvort ég vildi koma með henni í kaffi, ég sagðist þurfa að nota ljósritunarvélina. Annars var ég að tala við kennarann minn um dagin sem er Bandarískur gyðingur sem átti afa og ömmu sem dóu í helförinni auk annara ættingja. Núna er hún að kenna stelpu myndlist sem segist vera afkomandi þessa manns. Hún ber einmitt sama ættarnafn.
Skrifað af Gvendur klukkan 15:26 |
Flokkur: Almenn leiðindi, Fjármál, Geðklofi, Geðveiki, Hamingja, Húmor, Markaðurinn, Menntun, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Útlönd
domenica, febbraio 17, 2008
Auður og Sigga
Auður og Sigga Halla komu í heimsókn og voru í viku. Það var yndislegt eins og sjá má á nokkrum myndum.
Skrifað af Gvendur klukkan 17:31 |
Flokkur: Börnin, Ferðalög, Fjölskylda, Hamingja, Ljósmyndun, Skemmtun, Stjórnmál, Útivist, Útlönd
martedì, febbraio 05, 2008
lunedì, febbraio 04, 2008
Forza Viola
Skrapp á fótboltaleik í gær. Fiorentina - AC Milan. Það var stuð. Því miður töpuðu mínir menn í fljólubláu en það var samt stemning á vellinum. Eiginlega það mikil stemning að um tíma var ég örlítið hræddur um heilsuna. Ég var staddur fyrir aftan annað markið og stuðningsmenn Milan voru stúkaðir af rétt hjá. Þeir voru með reykbombur og sprengjur svo dundi á öllum vellinum. Ítalarnir í kringum mig öskruðu þá á þá á mjög dónalegri ítölsku og bættist orðaforðinn minn í þeirri deild um allavegana helming. Það var svo sungið og trallað allan leikinn og mikið stuð var á fólki. Þetta geri ég aftur.
venerdì, gennaio 25, 2008
Stjórnarslit
Það má læra margt af Ítölum. Það veit ég. Þegar stjórnarslit verða á Ítalíu þá fagna þeir sem sigra í þingsal með kampavíni og fleira góðgæti. Hvernig væri ef það yrði gert næst þegar skipt er um meirihluta. Alvöru spagettístjórnmál takk! Hættið að reyna að fela valdagræðgina og ömurlegheitin. Komið út úr skápnum!
giovedì, gennaio 24, 2008
giovedì, gennaio 17, 2008
Eins árs gamalt moggablogg
Skrifað af Gvendur klukkan 09:37 |
Flokkur: Almenn leiðindi, Geðveiki, Húmor
martedì, gennaio 15, 2008
Du gamla du fria
Ég skrapp til Lundar um daginn, hitti þar 18 ára íslending sem klárar menntaskóla á þessu ári. Eftir menntaskóla ætlar hann að fara að vinna í sex mánuði til að safna sér fyrir heimsreisu. Hann var einmitt búinn að redda sér vinnu sem borgar um helmingi meira á mánuði en það sem hann fékk þegar hann kom til íslands og vann seinasta sumar. Þegar ég spurði um ástæðuna fyrir þessu brast hann í söng:
"Du gamla, du fria, du fjällhöga Nord,
du tysta, du glädjerika sköna!
Jag hälsar dig, vänaste land uppå jord,
din sol, din himmel, dina ängder gröna,
din sol, din himmel, dina ängder gröna.
Du tronar på minnen från fornstora dar,
då ärat ditt namn flög över jorden.
Jag vet, att du är och du blir vad du var.
Ja, jag vill leva, jag vill dö i Norden!
Ja, jag vill leva, jag vill dö i Norden!"
Hafðu þetta, Þórður.
Skrifað af Gvendur klukkan 00:11 |
Flokkur: Ferðalög, Fjölskylda, Geðveiki
venerdì, gennaio 11, 2008
Hillary látin
Edmund Hillary er látin. Það er leiðinlegt. Enda er maðurinn sennilega frægasti kallinn sem hefur veitt í fjölskyldu ánni.
giovedì, gennaio 03, 2008
Vísindamaður
Þetta þykir mér merkilegt. Ég ætti kannski að hætta öllu skólastússi og byrja að rannsaka þetta mikilvæga mál þar sem ég er svo vel staðsettur í Flórens á Via Dante Aligheri. Rétt hjá þeim stað þar sem skáldið sjálft er sagst hafa búið. Einnig gæti ég rölt um Uffici og skoðað málverk endurreisnarmanna og komist að því hvaða leyndardóma Guð er að fela fyrir okkur á Íslandi.
mercoledì, gennaio 02, 2008
Kvikmyndadómur
Ég skrapp á nýjustu mynd Wes Anderson, The Darjeeling Limited í bíó hérna í Köben. Hún er góð. Wes klikkar ekki.
